Ahmad Faqa gengur til liðs við HK

Ahmad Faqa kemur á láni frá AIK og mun spila með HK í Bestu Deildinni í sumar.
Ahmad Faqa kemur á láni frá AIK og mun spila með HK í Bestu Deildinni í sumar.

Välkommen Ahmad Faqa!

Það er okkur sönn ánægja að tilkynna að Ahmad Faqa er genginn til liðs við HK á láni frá AIK og mun hann leika með liðinu í Bestu Deildinni í sumar.

Ahmad er tvítugur (2003) og er uppalinn hjá AIK. Hann er fæddur í Sýrlandi og er því bæði með sænskan og sýrlenskan ríkisborgararétt.

Ahmad er flott viðbót við hópinn og mun hann styrkja liðið fyrir komandi átök í @bestadeildin. Við bjóðum hann hjartanlega velkominn í HK.

Áfram HK!