Ester Lilja gerir samning við HK

Ester Lilja Harðardóttir hefur skrifað undir samning við HK.

Ester er 21 árs miðjumaður sem spilar í dag í Bandaríska háskólaboltanum með Nicholls State University. Hún kemur til liðs við HK núna í vor.

"Ester er sóknarsinnaður leikmaður með góðan hraða og leikskilning. Eftir að hafa verið frá vegna meiðsla síðastliðið sumar mun hún án efa mæta tvíefld til leiks á komandi tímabili. Við væntum mikils af henni á komandi tímabili" segir Jakob Leó Bjarnason þjálfari HK.

Áfram HK!

 

 


GLEÐI - VIRÐING - METNAÐUR