Eva Stefánsdóttir gengur liðs við HK

Eva Stefánsdóttir hefur gengið til liðs við HK á láni frá Val
Eva Stefánsdóttir hefur gengið til liðs við HK á láni frá Val

Eva Stefánsdóttir leikmaður Vals hefur verið lánuð í HK fyrir komandi tímabil og mun hún leika í treyju númer 7.

Eva sem á að baki unglingalandsleiki með U17 ára landsliði Íslands og 21 leik í meistaraflokki með Val og KH leikur yfirleitt á kantinum en getur einnig leyst stöðu framherja. Þarna er á ferðinni gríðarlega efnileg stúlka sem kemur til með að styrkja lið HK mjög mikið. Við í HK erum mjög ánægð með að Eva valdi að koma til liðs við félagið og sýnir það enn og sannar hversu gott starf er unnið í kringum kvennalið félagsins okkar!

ÁFRAM HK!