Góður árangur á Íslandsmóti unglinga í borðtennis

Flottir iðendur HK ásamt Bjarna þjálfara
Mynd: aðsend
Flottir iðendur HK ásamt Bjarna þjálfara
Mynd: aðsend

Íslandsmót unglinga var haldið í íþróttamiðstöðinni á Hvolsvelli helgina 16. - 17. mars. Mótið var afar vel heppnað og gleðin skein úr andlitum keppenda. HK endaði með tvo Íslandsmeistaratitla undir tryggri leiðsögn Bjarna þjálfara. Benedikt Darri Malmquist er Íslandsmeistari 11 ára og yngri. Sindri Þór Rúnarsson og Benedikt Darri Malmquist eru Íslandsmeistar í tvíliðaleik pilta 13 ára og yngri. Auk þess unnust nokkur silfur og bronsverðlaun. Ljóst er að framtíðin er björt hjá HK í borðtennis.

Hægt er að lesa meira um mótið á síðu BTÍ: https://bordtennis.is/bh-br-dimon-garpur-hk-og-kr-unnu-titla-a-islandsmoti-unglinga/.

#liðfólksins