Gullverðlaun í Ikast - Frábær árangur HK-inga á erlendri grundu

Glæsilegur hópur HK-INGA kláraði í gær keppni á U17 Nevza í IKAST Danmörku

 


U17 fulltrúar HK á Nevza 2021:

 - Massimo Pistoia, þjálfari strákanna
 - Sigurður Kári Harðarson
 - Jökull Jóhannsson
 - Emil Már Diatlovic
 - Heba Sól Stefánsdóttir
 - Lejla Sara Hadziredzepovic
 - Sóldís Björt Leifsdóttir Blöndal
 - Helena Einarsdóttir

 
Stelpurnar stóðu sig hrikalega vel og spiluðu til úrslita þar sem þær unnu Danmörku sannfærandi 3-0 og eru þar með Nevza meistarar 2021!
Strákarnir léku um bronsið á móti Færeyjum. Leikurinn tapaðist 3-0 en dýrmæt reynsla komin í bankann fyrir þessa ungu stráka.
Leikið var um sæti í dag en drengirnir léku í bronsleiknum á meðan að stelpurnar gerðu sér lítið fyrir og tryggðu sér sæti í úrslitaleiknum. Drengjaliðið mætti Færeyjum í sínum leik en stúlkurnar mættu Danmörku í úrslitaleiknum.
                                                                                             
                                                                                                blakfréttir.is
 
Blakfréttir.is
 
 Blakfréttir.is
 


Á lokahátíðinni á Nevza í gær var draumalið mótsins tilkynnt og átti HK þrjá af fjórum íslensku leikmönnunum í stúlknaliðinu:

 - Lelja Sara Hadziredzepovic díó
 - Heba Sól Stefánsdóttir miðja
 - Sóldís Björt Leifsdóttir kantur
 - Agnes Björk Ágústsdóttir frelsingi


Sóldís Björt var einnig valin verðmætasti leikmaður mótsins (MVP)!

 
 

Innilega til hamingju með valið stelpur og allir HK-Blakarar með árangurinn á mótinu!

 
Erum hrikalega stolt af þessum flotta hópi, teyminu öllu og því öfluga blak starfi sem unnið er hjá HK. Framtíðinn er svo sannarlega björt.
 
Áfram Ísland og áfram HK!