Hanna Sól í HK


Hanna Sól Einarsdóttir kemur á láni frá Stjörnunni til HK út tímabilið.

Hanna Sól er öflugur varnar-og miðjumaður sem hefur vakið athygli fyrir góða frammistöðu í yngri flokkum Stjörnunnar.

Hún er öflug í loftinu og návígum og með gott keppnisskap sem mun koma HK til góða í baráttunni sem er framundan í Lengju deildinni.

 

 


 GLEÐI - VIRÐING - METNAÐUR