Haukur Ingi semur til tveggja ára

Haukur Ingi Hauksson
Haukur Ingi Hauksson

Haukur Ingi Hauksson hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við HK. Haukur Ingi hefur spilað fyrir yngri flokka HK en átt nú í vetur mjög góða innkomu í lið meistaraflokks. Haukur Ingi er einn af lykilleikmönnum liðsins en hann spilar á miðjunni og í skyttu. Hann hefur jafnframt verið reglulega valinn í yngri landslið Íslands, nú síðast í U 20 síðastliðið haust.

"Það er frábært að Haukur Ingi semji áfram við okkur, hann hefur átt mjög góðar innkomur í vetur og við berum áfram miklar væntingar til hans. Hann á eftir að vera lykilleikmaður í meistaraflokki HK næstu árin" segir Brynjar Valsteinsson í stjórn handboltadeildar HK.

#LiðFólksins