Henríetta og Hildur Björk í lokahóp í undankeppni EM 2023 U19

Margrét Magnúsdóttir, landsliðsþjálfari U19 kvenna, hefur valið hóp sem tekur þátt í fyrstu umferð undankeppni EM 2023. 

Þær Henríetta Ágústsdóttir og Hildur Björk Búadóttir verða fulltrúar HK í hópnum. 

Ísland er þar í riðli með Litháen, Færeyjum og Liechtenstein, en leikið er í Litháen dagana 8.-14. nóvember. 

Það lið sem endar í efsta sæti riðilsins fer upp í A deild undankeppninnar fyrir seinni umferðina sem fer fram í vor.

 

Til hamingju og gangi ykkur vel!