HK boðar til aðalfundar félagsins

HK boðar til aðalfundar félagsins sem haldinn verður mánudaginn 11. maí nk. kl. 20:30 í veislusal HK í Kórnum.

Dagskrá:

a) Kosning fundarstjóra og fundarritara.

b) Kosning þriggja manna kjörbréfanefndar er sannreynir atkvæðisbærni félaga.

c) Fundargerð síðasta aðalfundar lesin og borin upp til samþykktar.

d) Skrifleg skýrsla aðalstjórnar lögð fram til umræðu.

e) Kjörbréfanefnd skilar áliti sínu.

f) Skoðaður ársreikningur aðalstjórnar lagður fram til umræðu og samþykktar.

g) Fjárhagsáætlun lögð fram og samþykkt fjárhagsáætlunar.

h) Lagabreytingar.

i) Kosningar:

i. Kosning formanns (annað hvort ár)

ii. Kosning þriggja stjórnarmanna

j) Ákvörðun félagsgjalda.

k) Önnur mál.

Félagar hafa rétt til að bera fram tillögur um lagabreytingar. Tillögur um lagabreytingar skulu berast framkvæmdastjóra eigi síðar en viku fyrir aðalfund og skulu þær liggja fram á skrifstofu félags fram að aðalfundi.

Uppstillingarnefnd auglýsir eftir framboðum og tillögum um frambjóðendur til embætta sem kosið er um á aðalfundinum. Framboðum skal skilað til framkvæmdastjóra eigi síðar en viku fyrir aðalfund. Senda má gögn á netfangið: sveinbjorn@hk.is

 

Kópavogur, 22. apríl 2026.

Aðalstjórn HK