- HK
- Um HK
- Skráning
- Fréttir
- Veislusalur
- Hlaupahópur
- Íþróttaskóli
- Frístundarvagn
- Rafíþróttadeild
- Árskort
- Bandý
- Borðtennis
- Blak
- Dans
- Fótbolti
- Handbolti
- Rafíþróttir
HK tryggði sér deildarmeistaratitilinn í Grill 66-deild kvenna með öruggum 31–20 sigri á Fjölni í lokaumferðinni í Kórnum. Með sigrinum tryggði liðið sér jafnframt sæti í Olísdeild kvenna á næsta tímabili.
HK var sterkari aðilinn frá fyrstu mínútu og lét aldrei ógna forystu sinni. Varnarleikurinn var afar þéttur og sóknarleikurinn skilvirkur, sem skilaði liðinu sannfærandi sigri þegar upp var staðið.


Mikil fagnaðarlæti brutust út við lokaflautið þegar ljóst var að HK hafði siglt titlinum í höfn. Leikmenn, þjálfarar og stuðningsmenn fögnuðu saman í Kórnum þar sem bikarinn fór á loft við mikinn fögnuð.
Að baki þessum glæsilega árangri liggur mikil vinna, seigla og sterk liðsheild sem hefur einkennt HK-liðið í vetur. Markmiðið var skýrt frá upphafi – að snúa aftur í efstu deild – og það markmið er nú orðið að veruleika.

Myndir: Bernhard Kristinn
HK-hjartað er fullt af stolti.