- HK
- Um HK
- Skráning
- Fréttir
- Veislusalur
- Rafíþróttir
- Verslun
- Íþróttaskóli
- Frístundarvagn
- Skák
- Árskort
- Bandý
- Borðtennis
- Blak
- Dans
- Fótbolti
- Handbolti
- Hlaupahópur
Herrakvöldið fór fram með pompi og prakt og óhætt er að segja að kvöldið hafi staðið undir væntingum. Frábær stemning, góður matur, gleði og skemmtun einkenndu kvöldið frá upphafi til enda.
Fjölmenni mætti til leiks og skapaði einstaka stemningu sem gerði kvöldið sannarlega eftirminnilegt.
Bolli Már fór á kostum sem veislustjóri og hélt þétt utan um dagskrána af mikilli snilld. Björn Bragi, ræðumaður kvöldsins, vakti mikla lukku og sá til þess að hláturinn var aldrei langt undan.
Lúðrasveit verkalýðsins setti svo sinn svip á kvöldið og skapaði magnaða stemningu, en gestir nutu jafnframt glæsilegs hátíðarkvöldverðar frá Sælkerabúðinni og drykkja frá CCEP.
Það var nóg um að vera alla dagskrána. Glæsilegt uppboð fór fram ásamt happdrætti þar sem fjölmargir veglegir vinningar voru í boði.
Þegar leið á kvöldið tók DJ Jón Gestur við keflinu og sá til þess að stemningin héldi áfram langt fram eftir kvöldi.
Við viljum færa öllum bakhjörlum Herrakvöldsins okkar bestu þakkir fyrir ómetanlegan stuðning. Kvöld sem þetta verður ekki að veruleika án þeirra fjölmörgu fyrirtækja og einstaklinga sem leggja okkur lið.
Við þökkum einnig öllum þeim sem mættu, tóku þátt í gleðinni og gerðu Herrakvöldið að þeirri frábæru skemmtun sem það varð.
Takk fyrir stuðninginn og fyrir að gera kvöldið eftirminnilegt!
Eftirfarandi vinningsnúmer komu upp í happdrætti Herrakvöldsins:
1889
1500
265
Vinningshafar eru minntir á að vitja vinninga innan tveggja mánaða.
Nánari upplýsingar má finna á hk.is.
Takk fyrir frábært Herrakvöld – og sjáumst hress að ári!