- HK
- Um HK
- Skráning
- Fréttir
- Veislusalur
- Hlaupahópur
- Íþróttaskóli
- Frístundarvagn
- Rafíþróttadeild
- Árskort
- Bandý
- Borðtennis
- Blak
- Dans
- Fótbolti
- Handbolti
- Rafíþróttir
Eins og fram kemur í frétt Fótbolta.net hefur Macron, í samstarfi við fyrrverandi leikmenn ÍK, hannað sérstaka afmælistreyju sem heiðrar sögu félagsins. Treyjan vísar í rætur ÍK, liti félagsins og þá einstaklinga og bakhjarla sem komu að uppbyggingu knattspyrnunnar í Kópavogi á sínum tíma.
Fyrir HK hefur þetta sérstaka þýðingu. ÍK starfaði á árunum 1976 til 1991 og er stór hluti af þeirri sögu sem knattspyrnustarf HK byggir á í dag. Með treyjunni er ekki aðeins verið að minnast fortíðarinnar, heldur einnig að tengja hana við framtíðina.
Það er HK sérstaklega dýrmætt að allur hagnaður af sölu treyjunnar renni til barna- og unglingastarfs félagsins. Þannig fær arfleifð ÍK að lifa áfram í starfi yngstu iðkendanna okkar og styðja við næstu kynslóðir knattspyrnufólks í Kópavogi.
HK mun klæðast afmælistreyjunni laugardaginn 5. september þegar liðið mætir Fylki í Lengjudeild karla. Leikurinn verður um leið tækifæri til að heiðra sögu ÍK, fyrrverandi leikmenn, sjálfboðaliða og alla þá sem lögðu sitt af mörkum við uppbyggingu knattspyrnunnar í bænum.
HK þakkar Macron kærlega fyrir að halda þessari sögu á lofti með jafn fallegum og vönduðum hætti. Treyjan er virðingarvottur við rætur félagsins, ÍK-fólkið sem ruddi brautina og það sterka íþróttasamfélag sem við njótum góðs af í dag.

Frétt Fótbolta.net má lesa hér:
https://fotbolti.net/news/12-05-2026/50-ara-afmaelistreyja-ik