Hlé á öllum æfingum til 19.október

Allt íþróttastarf á landinu hefur verið lagt niður til 19.október.

Þetta tekur gildi strax í dag fimmtudaginn 8.október og á við um alla aldurshópa.

Þjálfarar einstakra flokka innan deildanna munu vera í sambandi við iðkendur sína vegna heimaæfinga líkt og var í vor.

Við hvetjum alla HK-inga til að fylgja fyrirmælum stjórnvalda og huga vel að heilsunni.

Stöndum saman öll sem eitt í þessu!

Hér má sjá tilmæli sóttvarnarlæknis.

Áfram HK!