Isabella Eva Aradóttir skrifar undir samning

Isabella Eva hefur skrifað undir samning við meistaraflokk HK.

Isabella sem er á 21. aldursári er uppalinn hjá félaginu. Hún á 2 landsleiki fyrir U19 ára landslið Íslands.

Hún var lánuð í Breiðablik í fyrra og lék þar 3 leiki í Pepsi Max deildinni og á auk þess rúmlega 60 leiki fyrir meistaraflokk. 

Það er gríðarlegt fagnaðarefni að Isabella skyldi skrifa undir samning við HK

Áfram HK!