Ívan Óli Santos til Gróttu

-

HK hefur komist að samkomulagi við Gróttu um sölu á Ívani Óla Santos.

Ívan kom til félagsins frá ÍR árið 2020 og lék með ÍR á láni það ár. Hann tók þátt í tveimur leikjum meistaraflokks síðastliðið sumar en lék auk þess með 2. flokki félagsins þar sem hann var markahæstur í A deild.

Við þökkum Ívani fyrir hans framlag og óskum honum velfarnaðar í framtíðinni.