Július Flosason framlengir samning við HK

Júlíus Flosason framlengir
Júlíus Flosason framlengir

Július Flosason framlengir samning við HK.

Júlíus Flosason hefur samið við HK að nýju til tveggja ára. Júlíus hefur spilað upp alla yngri flokka HK og er einn af mikilvægustu leikmönnum liðsins en hann spilar í vinstri skyttustöðu.

Júlíus hefur komið sterkur inn í vetur og er einn af öflugustu sóknarmönnum liðsins. Júlíus var óheppinn að meiðast snemma á þessu tímabili en hefur komið sem vítamínsprauta inn í sóknarleik liðsins eftir áramót.

Stjórn deildarinnar er virkilega ánægð með að hann skuli hafa framlengt samning sinn við HK.

#liðfólksins