Leikmenn HK í Mizunoliði ársins 2019-2020

Blaksambandið tilkynnti nýlega hverjir hlutu kosningu í lið ársins í Mizunodeild kvenna og karla 2019-2020. Það eru þjálfarar og fyrirliðar liðanna sem keppa í Mizunodeildinni sem kjósa þá leikmenn og þjálfara sem þeir telja að hafi staðið sig hvað best á leiktímabilinu. Einnig var valinn besti dómari ársins ásamt efnilegasta og besta leikmanni tímabilsins.

Fjórir HK-ingar hlutu þann heiður að vera í þessum hópi. Þau eru:

  • Sara Ósk Stefánsdóttir, miðja
  • Lúðvík Már Matthíasson, uppspilari sem líka var valinn besti leikmaður tímabilsins
  • Arnar Birkir Björnsson, frelsingi
  • Elvar Örn Halldórsson, efnilegasti leikmaðurinn

Stjórn blakdeildar HK óskar þeim til hamingju með árangurinn.

Sjá nánar á vefsíðu BLÍ.