Martin Rauschenberg til HK

Martin Rauschenberg
Martin Rauschenberg

HK hefur fengið varnarmanninn öfluga Martin Rauschenberg að láni frá Stjörnunni út keppnistímabilið 2021.

Martin lék 8 leiki með HK seinni hluta Íslandsmótsins í fyrra ásamt einum bikarleik og stóð sig með mikilli prýði.

Martin er 29 ára og hefur á ferli sínum leikið með Stjörnunni, Brommapojkarna og Gefle í Svíþjóð og Esbjerg í Danmörku. Martin hefur jafnframt leikið 21 leik með yngri landsliðum Danmerkur.

Það mikill fengur fyrir HK að Martin hafi ákveðið að spila annað tímabil með félaginu.

Áfram HK


GLEÐI - VIRÐING - METNAÐUR