Jón Guðni Fjóluson hefur verið ráðinn til starfa inn í þjálfarateymi í 3.og 4.flokki karla í knattspyrnu.
Jón Guðni er 36 ára gamall og býr hér í Kórahverfinu. Hann þarf ekki að kynna fyrir knattspyrnuáhugafólki en hann lék sem atvinnumaður í Svíþjóð, Noregi, Belgíu og Rússlandi um árabil auk þess að leika 18 A landsleiki. Þá hefur hann lokið A þjálfaragráðu sænska knattspyrnusambandsins.
Þetta er mikið fagnaðarefni fyrir HK að ná Jóni Guðna inn í starfið hjá okkur og væntum við þess að hann muni hafa verulega jákvæð áhrif á félagið okkar innan og utan vallar, til skemmri og lengri tíma litið.
Við undirskrift samninga sagðist Jón Guðni vera mjög spenntur fyrir að vinna með öllum þessum ungu leikmönnum og teymum beggja flokka og að miðla af þeirri reynslu sem hann hefur aflað sér.
Áfram HK!
Gleði - Virðing - Metnaður