Ólafur Örn Ásgeirsson í leikmannahópi U19

 

Ólafur Ingi Skúlason, landsliðsþjálfari U19 karla, hefur valið leikmannahóp fyrir leiki í undankeppni EM U19 karla sem fara fram í Slóveníu dagana 4. til 13.október. Leikið verður gegn Slóveníu, Ítalíu og Litháen.

 

HK á sinn fulltrúa í liðinu, markmanninn sterka Ólaf Örn Ásgeirsson. HK-ingurinn Ari Sigurpálsson sem leikur með Bologna á Ítalíu er einnig í hópnum.

 

Til hamingju strákar!

 

Áfram HK!