Ráðstefnan “Deilum því sem vel er gert”

 

Ráðstefnan “Deilum því sem vel er gert” þar sem barna- og unglingaráð, og aðrir sem tengjast yngri flokka starfi komu saman, var haldin í höfuðstöðvum KSÍ laugardaginn 14. janúar 2023. Markmiðið með ráðstefnunni var að félögin myndu læra hvert af öðru og koma af stað samtali sín á milli. Annað markmið er að gefin verði út handbók um starfsemi Barna- og unglingaráða.