Sigurður Jefferson áfram hjá HK

Sigurður Jefferson Guarino semur að nýju við HK og hefur framlengt samning sinn til ársins 2027. Sigurður hefur spilað upp alla yngri flokka hjá félaginu og er nú orðinn burðarás í liði meistaraflokks félagsins. Sigurður er línumaður að upplagi en hefur einnig spilað sem hornamaður á þessu tímabili. Sigurður er jafnframt einn allra besti varnarmaður í Olís deildinni. 
Stjórn HK er gríðarlega ánægð með að svo öflugur leikmaður hafi ákveðið að framlengja samning sinn við félagið, enda bindum við miklar vonir við Sigurð.