- HK
- Um HK
- Skráning
- Fréttir
- Frístundarvagn
- Veislusalur
- Íþróttaskóli
- Hlaupahópur
- Árskort 2023
- Handbolti
- Fótbolti
- Blak
- Bandý
- Borðtennis
- Dans
Sigurjón Guðmundsson markmaður hefur skrifað undir 3 ára samning.
Sigurjón eða Sjonni eins og hann er kallaður verður 25 ára á árinu. Sjonni hefur alla tíð spilað fyrir HK og var leikmaður ársins hjá félaginu á síðustu leiktíð. Þetta tímabil er hans fyrsta í efstu deild og hefur hann vakið verðskuldaða athygli fyrir sína frammistöðu.
Sigurjón hefur alla burði til þess að verða einn besti markmaður deildarinnar á komandi árum og okkur því mikil ánægja að Sigurjón skuli hafa ákveðið að halda kyrru fyrir og veðja á þá vegferð sem félagið er á.