Stefán Ingi semur við HK



Sóknarmaðurinn öflugi, Stefán Ingi Sigurðarson, hefur samið við HK um að leika með félaginu í sumar.

Stefán Ingi, sem er 21 árs, kemur að láni frá Breiðablik og mun spila með HK fram í miðjan ágúst eða þar til hann snýr aftur til Bandaríkjanna þar sem hann stundar nám. 

Stefán Ingi er mikill markaskorari og hefur hann skorað 8 mörk á tæpum 1.200 mínútum í 23 leikjum fyrir ÍBV, Breiðablik og Grindavík á síðustu 2 ár í Lengjudeildinni og Mjólkurbikarnum. Á árunum 2017 til 2020 skoraði Stefán Ingi 66 mörk í Íslandsmóti og bikarkeppnum í 70 leikjum fyrir 2. og 3. flokk Breiðabliks. 

Það er virkilega ánægjulegt að fá Stefán Inga til liðs við HK og bjóðum við hann hjartanlega velkominn. 

Áfram HK!