Í sumar mun HK bjóða uppá fjölbreytt og vönduð námskeið fyrir börn á aldrinum 6 til 10 ára (2016-2019), bandý-, blak-, handknattleiks- og knattspyrnunámskeið fyrir 6 til 10 ára (2016-2019). HK reynir eftir fremsta megni að ná til sem flestra barna og þetta sumarið er engin undantekning. Skipulögð dagskrá frá kl. 09:00-12:00 og 13:00-16:00 alla virka daga. Allar námskeiðsvikur enda með pylsupartyi á sínum starfsstöðum. Allir umsjónarmenn sumarnámskeiða HK hafa reynslu af skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi.
Skráning er hafin hér: Vefverslun HK
- Knattspyrnunámskeið fer fram í Kórnum kl. 9-12
- Handknattleiksnámskeið fer fram í kórnum kl. 13-16
- Blaknámskeið fer fram í Kórnum kl. 9-12
- Bandýnámskeið fer fram í Digranesi kl. 9-12
- Sama verð er á öll ½ dags námskeið.
- 10% systkinaafsláttur veittur af námskeiðum innan sömu deildar.
- Ekki er heimilt að breyta skráningu námskeiða eftir að námskeið er hafið.
- Hvert stakt námskeið reiknast 3 klst.
- Fyrir heilsdagsnámskeið eru tvö stök námskeið sett í körfu
- Gert er ráð fyrir að börnin taki með sér hollt nesti og vatnsbrúsa en einn nestistími er á hverju 3 klst. námskeiði.
- Börn sem eru á námskeiðum fyrir og eftir hádegi skulu mæta með hollt og gott nesti. Boðið er upp á heitan mat í hádeginu gegn vægu gjaldi, skráning í gegnum Abler.
- Í Kórnum er aðstaða fyrir iðkendur til að borða sem ekki eru skráð í heitan mat í hádeginu. Starfsmenn eru á svæðinu.
- SAMLOKUKORT eru til sölu i abler og annað snarl er til sölu í afgreiðslu í Kórnum.
- Við opnum kl. 08:45 á morgnana og forráðamenn eru beðnir að sækja börnin sín tímanlega en öllum námskeiðum lýkur kl. 16:00.
Verðskrá:
Námskeið ½ dagur
3 klukkustundir (5 dagar) - 9500kr
Námskeið ½ dagur
3 klukkustundir (4 dagar) - 7600kr
Fleiri gagnlegar upplýsingar:
- HK áskilur sér rétt til að sameina námskeið ef ekki næst lágmarksþátttaka.
- HK áskilur sér rétt til að fella niður hádegismat, náist ekki lágmarksþátttaka (20) í hverri viku.
- HK áskilur sér rétt til að loka fyrir skráningu á námskeið ef hámarksfjölda er náð.
- HK áskilur sér rétt til að breyta dagskrá (t.d. vegna veðurs eða mætingar á námskeið).
- Það er mikilvægt að nærast vel og viljum við því biðla til foreldra að senda börn með hollt og gott nesti og vatnsbrúsa (eitt nesti á hverju 3 klst. námskeiði)
- ATHUGIÐ! Hnetur og aðrir bráða ofnæmisvaldar bannaðir.
- Iðkendur eru beðnir um að mæta klæddir eftir aðstæðum. Eftir veðri ef útivera er á dagskrá og eða í viðeigandi klæðnaði, íþróttafötum og helst íþróttaskóm.
Frekari upplýsingar um námskeið og fyrirkomulag námskeiða veitir yfirmaður sumarnámskeiða, Davíð Elí - david.eli@hk.is