Þrír skrifa undir hjá HK

Júlíus, Marteinn Sverrir og Einar Gunnar hafa allir skrifað undir 2 ára samning við HK
Júlíus, Marteinn Sverrir og Einar Gunnar hafa allir skrifað undir 2 ára samning við HK

Þeir Júlíus Flosason, Marteinn Sverrir Ingibjargarson og Einar Gunnar Guðjónsson hafa allir skrifað undir 2 ára samning við HK.

Júlíus er HK-ingur í húð og hár, meiðsli hafa haldið honum utan vallar undanfarin tímabil en nú er hann óðum að finna sitt gamla form. Hann hefur alla burði til þess að geta verið framtíðarleikmaður hjá félaginu og bindur HK miklar vonir við hann í náinni framtíð.

Marteinn var á láni hjá okkur á síðasta tímabili frá Fram og ákvað síðan að ganga til liðs við okkur í sumar. Ef Marteinn heldur áfram að þróa sinn leik gæti hann orðið lykilmaður hjá félaginu.

Einar Gunnar kláraði 3.flokk á síðasta tímabili. Í vetur verður hann hluti af meistaraflokki félagsins ásamt því að spila með U-liðinu.

 

 

 

Áfram HK!