Tumi Þorvarsson og Kristján Snær Frostason á reynslu hjá Venezia FC


Tumi Þorvarsson og Kristján Snær Frostason voru dagana 18.-25.apríl í heimsókn hjá Venezia FC á Ítalíu.

Tumi sem leikur ýmist sem framherji eða kantmaður og Kristján Snær sem er bakvörður hafa í vetur verið í meistaraflokki HK og vakið verðskuldaða athygli bæði með meistaraflokki og 2.flokki félagsins.

Drengirnir hafa báðir verið í æfingahópum undir 17 ára landsliði Íslands í vetur og Kristján lék með u-16 ára lansliðinu síðastliðið sumar.