Úlfur tekur við HK út tímabilið


Úlfur Blandon mun þjálfa meistaraflokk kvenna í HK út tímabilið. Honum til aðstoðar verður Milena Pesic. HK sem sigraði 2. deildina í fyrra situr í níunda sæti 1. deildar þegar sjö umferðum er ólokið. 

Úlfur er mjög reyndur og öflugur þjálfari sem hefur meðal annars stýrt kvennaliði Vals og karlaliðum Gróttu og Þróttar Vogum ásamt yngri flokkum um árabil. Hann hefur jafnframt verið stjórn HK innan handar í ráðgjöf í þjálfun undanfarin misseri. 

Milena spilaði um árabil með meistaraflokki HK/Víkings. Hún hefur verið að þjálfa í yngri flokkum félagsins með góðum árangri undanfarin ár.  

 

Stjórn HK er mjög ánægð með að fá þessa færu þjálfara til starfa og ber miklar væntingar til þeirra í þeim verkefnum sem eru framundan. 

 

 


 GLEÐI - VIRÐING - METNAÐUR