Ungir HK-ingar í landsliðsverkefnum

Átta HK-ingar hafa verið valdir í landsliðsverkefni sem fram fara í nóvember.

 

Breki Ottósson og Karl Ágúst Karlsson eru í æfingahópi U15 karla.

 

Magnús Arnar Pétursson var valinn í æfingahóp U16 karla.

 

Henríetta Ágústsdóttir var valin í úrtaksæfingar U17 kvenna.

 

Þeir Ívan Óli Santos, Ívar Orri Gissurarson og Ólafur Örn Ásgeirsson eru í æfingahópi U19 karla.

 

Þá er Valgeir Valgeirsson í U21 landsliðshópnum sem leikur gegn Liechtenstein 12. nóvember og Grikklandi 16. nóvember en báðir leikirnir fara fram ytra. Leikirnir eru liður í undankeppni EM 2023.

 

Við óskum þeim öllum til hamingju með valið.

Áfram HK!