Ungir HK-ingar í landsliðsverkefnum í janúar

Tíu HK-ingar voru valdir í landsliðsverkefni sem fram fóru í janúar.

Breki Ottósson var valinn í æfingahóp U15 karla. 

Þeir Magnús Arnar Pétursson og Karl Ágúst Karlsson voru í æfingahópi U16 karla.

Sóley María Davíðsdóttir var valin í æfingahóp U16 kvenna.

Henríetta Ágústsdóttir og María Hlín Ólafsdóttir voru valdar í æfingahóp U17 kvenna.

Kristján Snær Frostason og Tumi Þorvarssson voru í æfingahópi U17 karla.

Þeir Ívan Óli Santos og Ólafur Örn Ásgeirsson voru valdir í æfingahóp U19 karla.

Við óskum þeim öllum til hamingju með valið.

Áfram HK!