- HK
- Um HK
- Skráning
- Fréttir
- Veislusalur
- Hlaupahópur
- Íþróttaskóli
- Frístundarvagn
- Skák
- Árskort
- Bandý
- Borðtennis
- Blak
- Dans
- Fótbolti
- Handbolti
- Rafíþróttir
Þorsteinn Roy Jóhannsson kom fyrstur í mark í karlaflokki á tímanum 36:12, en Íris Anna Skúladóttir sigraði kvennaflokkinn á 40:26. Bæði hafa þau nú unnið Vatnsendahlaupið oftar en einu sinni. Þorsteinn sigraði einnig árið 2024 og Íris Anna varð fyrst kvenna árið 2025.
Yngsti þátttakandinn í ár var Tryggvi Baldursson, 12 ára, en elsti keppandinn var Sigurður Konráðsson, 73 ára. Sigurður hefur jafnframt tekið þátt í öllum þremur útgáfum Vatnsendahlaupsins.
Ljósmyndir frá hlaupinu eru nú komnar inn og hægt er að skoða þær hér:
https://sportmyndir.is/#/gallery/62
Úrslitin úr hlaupinu eru einnig komin á netið:
https://timataka.net/vatnsendahlaupid2026/
Að framkvæmd hlaupsins komu yfir 40 sjálfboðaliðar úr hlaupahópi HK sem sáu meðal annars um brautarvörlsu drykkjarstöð, merkingar og aðstoð við hlaupara. Framlag þeirra var ómetanlegt við að skapa góðan og öruggan hlaupadag.
HK þakkar öllum hlaupurum, sjálfboðaliðum og öðrum sem komu að framkvæmd hlaupsins fyrir frábæran dag. Við hlökkum til að sjá ykkur aftur að ári!