Vilt þú taka þátt og vera með í Virkni og vellíðan?

Verkefnið Virkni og vellíðan býður eldri bæjarbúum í Kópavogi upp á fjölbreytta og heilsueflandi hreyfingu nærri heimili þeirra. Markmiðið er að efla líkamlega, andlega og félagslega heilsu og stuðla að virkni og vellíðan á efri árum.

Hefðbundin starfsemi fer fram á sex stöðum í Kópavogi. Annars vegar eru æfingar í íþróttahúsunum Fífunni, Kórnum og Digranesi í samstarfi við íþróttafélög bæjarins. Hins vegar er boðið upp á æfingar í félagsmiðstöðvunum Gjábakka, Gullsmára og Boðaþingi. Á öllum stöðum eru æfingar tvisvar í viku undir leiðsögn þjálfara.

Hópþjálfun Fyrirkomulag Virkni og Vellíðan byggir á hópþjálfun undir leiðsögn þjálfara 2–3 sinnum í viku í um 30 - 45 mínútur í senn.

Áhersla er lögð á fjölbreytta þjálfun í samræmi við ráðleggingar um hreyfingu fyrir eldra fólk. Æfingarnar innihalda meðal annars:

· Styrktaræfingar.

· Þolæfingar.

· Liðleikaæfingar.

· Jafnvægisæfingar.

Þjálfarar útbúa æfingaáætlanir og aðlaga æfingar að líkamlegri getu hvers og eins.

Hvar fara æfingar fram?

Hefðbundnar æfingar fara fram í:

· Breiðablik – Fífunni

· HK – Kórnum

· Íþróttahúsinu Digranesi

· Félagsmiðstöðvunum Gjábakka, Gullsmára og Boðþing

· Staðsetning valæfinga getur verið breytileg milli anna. Nánari upplýsingar um hvar þær fara fram eru auglýstar í upphafi hverrar annar.

Valæfingar

Auk reglulegra æfinga tvisvar í viku býður Virkni og vellíðan upp á fjölbreyttar valæfingar. Valæfingarnar eru opnar öllum Kópavogsbúum og því ekki skilyrði að vera skráður þátttakandi í Virkni og vellíðan til að taka þátt.

Framboð valæfinga er breytilegt milli anna og geta þátttakendur valið úr mismunandi námskeiðum og æfingum eftir því sem í boði er hverju sinni. Greitt er sérstaklega fyrir valæfingar og er þátttökugjald mismunandi eftir námskeiðum. Markmið valæfinga er:

· Kynna fjölbreytt hreyfiúrræði og heilsueflingu.

· Auka áhuga og hreyfigleði.

· Efla félagslegt umhverfi og samveru.

Meðal þess sem hefur verið í boði er:

· Zumba, Línudans, Kínaskák, Quigong, Jóga, Bandvefslosun, Golf og Æfingar í fimleikasal Gerplu

Kynningartímar á fjölbreyttri hreyfingu innan bæjarins eru einnig reglulega í boði fyrir þátttakendur í Virkni og vellíðan.

Heilsulæsi Virkni og vellíðan leggur áherslu á heilsulæsi þátttakenda og býður reglulega upp á fræðslufyrirlestra sem fara fram bæði í félagsmiðstöðvum Boðaþing, Gjábakka og Gullsmára eða tónlistarhúsinu Salnum í Kópavogi, til dæmis um:

· Næringu

· Svefn

· Geðheilsu

· Húmor

· Heilsu og vellíðan

Á hverri önn eru einnig haldnir ýmsir skemmtilegir viðburðir fyrir þátttakendur sem dæmi jólahlaðborð á haustin og Götuganga Virkni og Vellíðan á vorin .

Tímabil

Haustönn stendur yfir í fjóra mánuði. Önnin hefst um miðjan eða lok ágúst og er fram í miðjan desember.

Vorönn stendur yfir í fimm mánuði. Önnin hefst í byrjun janúar og lýkur eftir fyrstu vikuna í júní.

Verð og skráning

Greitt er fyrir heila önn í einu.

· Haustönn: 20.000 kr.

· Vorönn: 25.000 kr. Hægt er að skrá sig með því að senda tölvupóst á virkniogvellidan@kopavogur.is eða með skráningarhlekknum hér fyrir neðan https://www.abler.io/shop/kopavogur/kopavogsbaer
Einnig er hægt að senda skilaboð í gegnum facebook síðu verkefnisins.