- HK
- Um HK
- Skráning
- Fréttir
- Veislusalur
- Hlaupahópur
- Íþróttaskóli
- Frístundarvagn
- Rafíþróttadeild
- Árskort
- Bandý
- Borðtennis
- Blak
- Dans
- Fótbolti
- Handbolti
- Rafíþróttir
Í ársskýrslunni má meðal annars finna ávarp formanns, skýrslu aðalstjórnar, skýrslur deilda, yfirlit yfir heiðursviðurkenningar og ársreikninga félagsins. Þar er farið yfir starfsemi handknattleiksdeildar, knattspyrnudeildar, blakdeildar, borðtennisdeildar, dansdeildar og bandýdeildar, auk þess sem fjallað er um helstu verkefni aðalstjórnar og starfsemi félagsins í heild.
Árið var viðburðaríkt hjá HK. Í skýrslunni kemur meðal annars fram að starfsemi HK nær til yfir 2.500 iðkenda og að félagið sé eitt stærsta íþróttafélag landsins. Þar er jafnframt lögð áherslá mikilvægi öflugs barna- og unglingastarfs, fjölbreytts viðburðahalds, sjálfboðaliðastarfs og áframhaldandi uppbyggingar á aðstöðu félagsins.
Meðal þess sem fjallað er um í skýrslunni er íþróttaskóli HK, hlaupahópur félagsins, samstarf um rafíþróttir, heilsueflingarverkefnið Virkni og vellíðan, vinna við nýja keppnisbúninga og áframhaldandi uppbygging félagsins. Í skýrslu aðalstjórnar kemur einnig fram að hjá HK starfi um og yfir 150 manns við þjálfun í sex deildum félagsins.
Félagar eru hvattir til að kynna sér ársskýrsluna vel fyrir aðalfund HK.
Aðalfundur HK verður haldinn mánudaginn 11. maí kl. 20:30 í veislusal HK í Kórnum.
Á dagskrá fundarins eru hefðbundin aðalfundarstörf. Þar verður meðal annars kosinn fundarstjóri og fundarritari, kjörbréfanefnd kosin til að sannreyna atkvæðisbærni félaga, fundargerð síðasta aðalfundar lögð fram, skýrsla aðalstjórnar rædd, ársreikningur lagður fram til umræðu og samþykktar og fjárhagsáætlun lögð fram. Þá verða lagabreytingar teknar fyrir, kosið í embætti og ákvörðun tekin um félagsgjöld.
Kosið verður um formann, sem kosinn er annað hvert ár, auk þriggja stjórnarmanna.
Minnum á félagsaðild og félagsgjöld
Í aðdraganda aðalfundar er félögum einnig bent á að huga að félagsaðild og félagsgjöldum fyrir árið 2026.
Félagar í HK eru annars vegar allir iðkendur HK sem greiða æfingagjöld og hins vegar þeir sem óska eftir því að vera félagar og greiða félagsgjöld til félagsins. Heiðursfélagar eru ekki gjaldskyldir.
Mikilvægt er að hafa í huga að aðeins félagar hafa atkvæðisrétt í félaginu. Þeir sem vilja nýta atkvæðisrétt sinn á aðalfundi HK eru því hvattir til að ganga frá félagsaðild tímanlega.
Við hvetjum alla HK-inga til að kynna sér ársskýrsluna, mæta á aðalfund og taka þátt í lýðræðislegu starfi félagsins.
Áfram HK!
Nánari upplýsingar:
Lesa ársskýrslu HK 2025 - Hér
Skrá félagsaðild / greiða félagsgjöld - Hér
Aðalfundur HK — upplýsingar og dagskrá - Hér